top of page
IMG_2403.JPG

HVEr er ég?

Ég er fyrst og fremst ástríðuleitandi... Það lýsir sér þannig að ég verð bæði að brenna fyrir það sem ég geri og komast að því hvað aðrir brenna fyrir.

 

Fyrir utan það að þá er ég upp alinn í Reykjavík en flutti ungur á Hvolsvöll þar sem stór partur af fjölskyldu minni rekur fyrirtækið Midgard.

Fljótlega elti ég svo ástina austur í Mörtungu, rétt við Kirkjubæjarklaustur og gerðist bóndi. Á sama tíma var ég í námi hjá Keili í Ævintýraleiðsögn en ég hef verið að leiðsegja frá 17 ára aldri.

Þar sem að ástríðan mín lá ekki í kindum, fórum við Rannveig unnusta mín að prófa okkur áfram í fjallahjólaferðum árið 2015 og síðan þá hef ég hef ég verið sjúkraflutningamaður, fjallahjólabóndi á Iceland Bike Farm og pabbi tveggja barna, Steins og Heiðu :)​

 

Það var svo eftir eitt ljúft hjólasumar á Iceland Bike Farm sem ég horfði inn í veturinn með lítilli eftirvæntingu og kvíða. Ég prófaði að hreyfa mig og hjóla duglega en kvíðinn og leiðinn minnkaði ekkert þangað til að ég áttaði mig á því að það var mannlegi þátturinn sem mig vantaði í lífið.

Í kjölfarið skráði ég mig í Markþjálfun og þá var ekki aftur snúið, ég var búinn að finna pússlið sem vantaði!

Það er ekkert sem gefur mér meira en að komast að því hvað fólk virkilega brennur fyrir og afhverju, því ég veit hvernig það er að reika stefnulaust um lífið og vera aldrei almennilega sáttur.

Markþjálfunin hjálpaði mér að finna stefnuna, sjálfstraustið, lífsneistann og að standa í lappirnar til þess að lifa því lífi sem mig langar að lifa og mig langar að hjálpa þér að gera það líka!

bottom of page